jeudi 24 novembre 2011

Nýtt blogg í fæðingu

Þá er enn annað bloggið farið af stað. Hvað get ég sagt, ég bara elska elska ELSKA allt sem við kemur make-upi, hári, tísku og stíl! Einnig langar mig að halda uppi smá bloggi fyrir vini og ættingja á Íslandi þar sem ég er ekki á leiðinni heim í bráð. Hér mun ég deila með ykkur fréttum, daglegum vangaveltum, stíl og make-up ráðum. Hver veit nema ég hendi einnig inn uppskriftum af og til þar sem mér finnst einnig mjög gaman að elda!


Við skulum hafa fyrsta bloggið á íslensku, en ég mun ýmist blogga á ensku eða íslensku héðan í frá.


Jólin nálgast óðum, nákvæmlega einn mánuður til jóla. Hér í Aix en Provence í Frakklandi er búið að skreyta miðbæinn með fallegum jólaljósum. Mjög kósí að rölta um göturnar og kíkja í búðir. Sérstaklega fyrir kaupsjúklinga eins og mig! Þar sem það eru engin jólapróf hjá mér í ár, í fyrsta skipti í lífinu, þá er ég búin að kaupa allar jólagjafir fyrir 1. Desember! Að sjálfsögðu jóladressið einnig klappað og klárt!


Jóladressið í ár keypti ég á www.monkiworld.com .. Fyrir ykkur verslunarglöðu Íslendinga þá eru þeir loksins komnir með vefverslun!! En að sjálfsögðu senda þér ekki heim á klakann NÉ taka íslensk kreditkort. Svo það er um að gera að nýta sér þjónustu vina og ættingja erlendis.


Fyrir valinu varð þessi fallegiiii pallettutoppur

og þetta fallega vínrauða pils




Ég ákvað að velja mér pils og topp í þetta skipti svo hægt sé að blanda báðum hlutum saman við önnur föt.


Við pallettutoppinn og vínrauða pilsið hafði ég husgað mér að klæðast þunnum svörtum klassískum sokkabuxum og klassísku svörtu rússkinshælunum mínum úr Topshop sem klikka aldrei! Ekki skemmir svo fyrir að fá sendan íkornapelsinn sinn til France fyrir jólin til að toppa lúkkið!!


Jólamake-upið verður síðan vínrauðar jólavarir og létt skygging með þessari fallegri pallettu frá Urban Decay sem ég ætla að gefa sjálfri mér í jólagjöf. Yndislegir litir, allir náttúrulegu litirnir fyrir fallega skyggingu!

zoom du produit
http://www.sephora.fr/Maquillage/Palettes-Coffrets/Yeux/Naked-Palette/P112926

Chanel Rouge Allure Luminous Satin Lipcolour, £21.50


Rouge Allure Luminous Satin lip colour frá Chanel klikkar seint.
Jólahárið verður síðan mjög líklega klassíska greiðslan the french twist (Til að vera í takt við Fransmennina), þar sem hárið mitt er í leiðinlegri sídd akkúrat núna.


Hér er gott video af youtube hvernig maður gerir þessa greiðslu, mjög einfalt!



Ef the french twist er ekki að gera sig fyrir ykkur þá er alltaf hægt að skella í hárið stórum rúllum til að framkalla þetta glæsilega lúkk með stórum bylgjum!



Hér er einnig gott myndband hvernig hægt er að setja í sig rúllur án þess að eiga rúllusett með hitara.







Vonandi gefur þetta ykkur einhverjar hugmyndir um fullkomið jólalúkk. Sérstaklega ykkur sem eruð að mygla í próflestri og hlakkið til próflokaballsins!


Þangað til næst,


Arna

Aucun commentaire:

Enregistrer un commentaire